Syneta

Bubbi

Milli jóla og nýárs um nótt við komum, í nístingskulda, slyddu og él Syneta hét skipið sem skreið yfir landið með skaddað stýri og laskaða vél Við austurströndina stóðum á dekki störðum í sortans kólguský drunur brimsins bárust um loftið bæn mín drukknaði óttanum í Innst í firðinum sáum við ljósin lýsa ljósin sem komu þorpinu frá um síðir þau hurfu í hríðina dökku um hjörtu okkar flæddi lífsins þrá Þessa nótt skipið á Skrúðnum steytti skelfing og ótti tóku öll völd Í bátana komumst við kaldir og þreyttir í kolsvarta myrkri beið aldan köld Þá nótt við dóum, drottinn minn góður drukknuðum bjarglausir einn og einn Himinn og haf sýndust saman renna okkar síðasta tak var brimsorfinn steinn Innst í firðinum.. Í þangi við fundumst en fimm ennþá vantar fjörunni aldan skilaði oss í hús á börum við bornir vorum með bláa vör eftir öldunnar koss Ef þú siglir um sumar, vinur og sérð við Skrúðinn brimsorfin sker viltu biðja þeim fyrir er fórust þeim fimm sem aldrei skiluðu sér

Watch the song video
Top songs from Bubbi
Playground Sessions Course Banner
Did you ever dreamed on playing piano?

Playground Sessions is a revolutionary new way to learn music and play the piano. No more boring courses. The adaptive videos automatically adjust to your skill level. Plus, you’ll receive regular feedback on your progress each week, plus a personal training plan from a professional piano teacher.

Start to play the piano instantly - and have fun doing it!